Listvinnzlan er skapandi og inngildandi vettvangur á sviði lista og menningar.
Við rekum listmiðstöð að Austurstræti 5, 101 Reykjavík.
Við bjóðum uppá opin stúdíó og námskeið.
Við sinnum ráðgjöf um inngildingu og styðjum listafólk til þátttöku í listalífinu.
Sýningin okkar Ómur er á dagskrá Listahátiðrar í Reykjavík 2026
ÓMUR 2026
Sýningin ÓMUR verður opnuð 24. MAÍ klukkan 15:00 í
LISTASAFN SAMÚELS, SELÁRDALUR
Hún stendur til - 1. SEP 2026
Hér er nánar fjallað um sýninguna á vef Listahátíðar 2026
Námskeið í myndasögugerð með Inga Rúnari Kjartanssyni 27.maí - 18.júní
Við kynnum með stolti stutt og hagnýtt námskeið í myndasögugerð með Inga Rúnari Kjartanssyni, myndasöguhöfundi. Í samstarfi Listvinnzlunar og Fjölmenntar.
Á námskeiðinu læra þátttakendur grunnatriði í myndasögugerð.
Dæmi um það sem er kennt á námskeiðinu:
þróa söguþráð, skapa aðalpersónu
setja söguna upp í myndarömmum
Í lok námskeiðs hafa þátttakendur búið til sína eigin stuttu myndasögu.
Kennslutímabil: 27.maí - 18.júní
Kennslutími : Fimmtudagar kl 17-19
Námskeiðið er kennt í húsnæði Listvinnslunnar, Austurstræti 5, 101 Reykjavík.
Listvinnzlan á Instagram
Viltu taka þátt í vegferð okkar
Við viljum bjóðar þér að taka þátt í vegferð Listvinnslunnar.
Með því að taka þátt fjárfestirðu í tilvist okkar og öllum þeim verkefnum sem við vinnum að .
Við erum óhagnaðrdrifið amannaheillafélag sem starfar á styrkjum frá einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum.
Ef þú vilt leggja okkur lið og styrkja okkur geturðu millifært inn á bankareikninginn okkar.
Kennitala 670924-1140
Banki 0515-26-012627
Við notum styrkina í samræmi við okkar almannaheillastarfsemi og tryggjum að þeir fari beint til þeirra verkefna sem við erum að vinna að.
Takk fyrir að vera með og styðja við starfið okkar.
Listaverk - sala listaverka
Listvinnzlan veitir fjölbreytta aðstoð innan myndlistar, bæði fyrir listamenn og áhugasama safnara.
Við styðjum við listamenn við að halda sýningar, koma listaverkum á framfæri og annast sölu þeirra.
Einnig aðstoðum við einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir sem vilja fjárfesta í íslenskri myndlist, hvort sem um er að ræða einstakt verk eða uppbyggingu á safni til framtíðar.
Markmið okkar er að skapa faglegan og traustan vettvang fyrir listsköpun, sýningar og meðvitaða listkaupendur.
Þjónusta
Ráðgjöf, þjónusta og verkefni
Listvinnslan býður upp á ráðgjöf, þjónustu og verkefni fyrir einstaklinga, hópa, stofnanir og fyrirtæki.
Við tökum að okkur fjölbreytt verkefni og höfum reynslu af að veita stuðning á ýmsum sviðum.
Kynning og stuðning fyrir listafólk
Við bjóðum einnig upp á kynningu, stuðning og umboðsstörf fyrir listafólk.
Hægt er að skoða listafólk á síðunni okkar og kynna sér verk þeirra.
Listmiðstöð fyrir fatlað listafólk
Við höfum komið á fót listmiðstöð þar sem fatlað listafólk getur unnið að listsköpun og skapandi verkefnum.
Með því vonumst við til að skapa atvinnumöguleika og auka þátttöku í samfélaginu fyrir listafólk með fötlun.
Aðgengi
Hægt að keyra upp að dyrum. Inngangur: Rampur og nýleg lyfta með góðu aðgengi fyrir hjólastóla.
Inngangur Austurstræti 5Austurstræti er orðið að göngugötu. Inngangur: Þröskuldur og eldri lyfta í góðu ástandi.
Inngangur Hafnarstræti 6Rólegt og bjart umhverfi með stillanlegri lýsingu og vinnuaðstöðu sem hægt er að laga að mismunandi þörfum.
TæknirýmiðGott aðgengi um allt rýmið, þar á meðal aðgengileg snyrting.
MeginrýmiðMeginrýmið